|
|
|
Herdís Fjóla Eiríksdóttir • a.k.a Dísa • 31 árs • Tvö börn • Einn kall • Bý í 101 R-vík • Er frá Höfn@Ísland • Er tölvunörd • Þoli ekki gúrkur • Elska Law & Order • Tala spænsku • Held með Valencia
Contact Info
herdis01@ru.is (354) 861 3945
Nýlendugata 30 - 101 Reykjavík - Iceland
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
| Ísland best í heimi | | 02. febrúar 2010, Þriðjudagur | | Klukkan: 14:42 | Best að byrja á því að óska ykkur öllum til hamingju með handboltaliðið okkar :) Ég er varla búin að ná þessu ennþá. Þó svo það sé langt síðan ég skrifaði síðast þá er ósköp fátt að frétta héðan frá mér. Ég er varla búin að ná mér eftir flensu sem ég fékk fyrir nærri 2 vikum síðan en fór þó í útilegu með B1 í flubbunum núna um síðustu helgi. Við gengum um allt Reykjanesið og gistum í tjaldi tvær nætur. Fyrri nóttina á Vigdísarvöllum og þá seinni á Höskuldarvöllum. Þetta var rosalega gaman þó svo það hafi tekið vel á að burðast með 16 kg á bakinu upp og niður öll möguleg fjöll og hóla á nesinu. Það var rosalega gott veður þó svo það hafi verið brunafrost mest allan tímann en ég er voðalega ánægð hvað maður er orðinn sjóaður í því að sofa í tjaldi í frosti og kulda. Við stelpurnar höfðum það svo gott í tjaldinu og ég naut þess alveg að skríða í pokann minn í kuldanum og lesa Kínverjann með höfuðljósið mitt. Sigga var meira að segja með próna með sér þannig að þetta var bara eins og í baðstofunum í gamla daga :) Við tókum með okkur útvarp til þess að hlusta á leikinn á laugardeginum þó svo það hafi nú nærri því skemmt góða skapið í hópnum og hefði alveg mátt missa sín. Við skiluðum okkur svo heim fyrir leikinn á sunnudeginum sem að sjálfsögðu setti punktinn yfir frábærra helgi, leikurinn það er að segja :) Núna er það svo bara venjuleg vinnuvika og allt sem því fylgir. Ég er rétt að byrja að huga að æfingum fyrir Laugavegshlaupið sem fer fram núna í júlí. Jújú ég skráði mig nefnilega í það!!! 55km,,,,, verður athyglisvert!
En já, best að hætta núna og fara að gera e-ð. Alltaf nóg að gera hjá manni. Kær kveðja á alla Dísa
 Ég Sigga og Steinunn á hæsta tindi Trölladyngju
 Í upphaf ferðar verið að vikta pokana. Minn var rúm 16 kíló :-| alltof mikið
 Oooo svo notalegt hjá okkur :)
 Tjaldstæðið okkar að Vigdísarvöllum.
 Verið að hlusta á leikinn og borða slátur á laugardeginum. Tölum ekki meira um það,,,
Ásta að príla uppá Keili! Auðvitað var ekki farið upp venjulegu gönguleiðina á Keili, oneinei við fórum sko hinumegin þar sem varla var hægt að komast!! Enda miklir naglar á ferð :)
 Við Steinunn uppi á einhverju af fjöllunum sem við fórum uppá (man ekki hvaða) | |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Svanfríður |
| Gleðilegt nýtt ár | | 06. janúar 2010, Miðvikudagur | | Klukkan: 02:43 | Gleðilegt nýtt ár elsku fólk. Héðan er allt fínt að frétta og við fjölskyldan að berjast við að snúa sólarhringnum við eftir jólafríið og koma daglega lífinu á rétt ról. Við vorum yfir aðal jóladagana á Hornafirði þar sem við höfðum það mjög gott með öllum okkar nánustu þeim megin í fjölskyldunni. Bræður mínir Jónsi og Hrafn komu líka frá Reykjavík ásamt Snæju stuðbolta þannig að við vorum öll systkinin á Höfn um jólin. Mér finnst ég svei mér þá alltaf vera að fatta það betur og betur hvað það er ómetanlegt að eiga svona mörg systkini. Fyrir það er ég gríðarlega þakklát og væri alveg til í að nenna að veita stelpnunum mínum það (sem ég er þó langt frá því að nenna). Milli jóla og nýárs komum við hingað til Rvíkur þar sem ég tók þátt í flugeldasölu fbsr. Salan gekk mjög vel og mér fannst alveg ótrúlega gaman að taka þátt í þessu. Ég var hrædd um að geta ekkert aðstoðað fólk því ég væri svo illa að mér í flugeldafræðum en þeir í sveitinni sáu um það og buðu okkur uppá tvær flugeldasýningar þar sem okkur voru sýndar allar aðal bomburnar. Ég gat því með góðri samvisku mælt með hinu og þessu þegar fólk kom og spurði. Á gamlársdagsmorgun flugum við svo á Akureyri þar sem við eyddum áramótunum með Eyjarfjarðarhluta fjölskyldunnar. Við keyptum alveg helling af flugeldum (ég mælti með nokkrum mjög góðum (: ) og sprengdum allt dótið heima hjá Svövu og fjölskyldu um kvöldið. Hanna Sigga var svakalega dugleg og hélt á blysum og stjörnuljósum og hafði voðalega gaman af öllu. Ég hafði keypt handa henni rosalega sætar bleikar heyrnahlífar sem gerðu algerlega gæfumuninn :) Á laugardaginn fórum við öll á Grenivík og lékum okkur í snjónum hjá sumarbústað tengdaforeldra minna. Það var svo mikill snjór fyrir norðan að ég hef bara aldrei séð annað eins og var eins og lítill krakki að búa til snjóhús og hoppa í skafla. Við lékum okkur líka á snjósleðanum og svei mér ef hann Daði ætti ekki bara að kaupa sér eitt stykki svo gaman hafði hann af græjunni. Heyrðu já eitt enn sem ég verð bara að minnast á!! Ég var að komast að því í gær að ég varð í 3ja sæti í Kettlebells jólaáskoruninni núna rétt fyrir jól!!! Vann þvílíkt flott verðlaun, 2 bækur og einn geisladisk. :) Mjög ánægð með mig. Svona til gamans (og smá monts) þá ætla ég líka að segja frá því að það er búið að breyta heimasíðu kettlebells.is og þar er þessi líka glæsilega en reyndar pínulitla mynd af mér :) mana ykkur til að reyna að finna mig En já,,,, núna er rútínan að taka við og allt að fara af stað aftur. Birna byrjaði í skólanum í dag og ég byrjaði að vinna í gær. Ég hlakka mikið til komandi árs og er bjartsýn á að þetta verði með betri árum ef ekki það besta :)Bið að heilsa ykkur öllum og óska ykkur líka besta árs allra tíma :)
 Ooooo það var svo gaman hjá mér að leika í snjónum á Grenó
 Spurning hvor skemmti sér betur, ég eða Hanna Sigga | |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Svanfríður |
| Jóla jól | | 20. desember 2009, Sunnudagur | | Klukkan: 19:18 | Jól jól jól. Núna eru sem sagt alveg að koma jól og ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast fyrir mánuði síðan (hmmm). Í fyrsta lagi þá fór ég í hreint magnaða ferð með B1 í flubbunum í lok nóvember og við gengum á nokkur fjöll í botni Hvalfjarðar og gistum svo í tjaldi við Súlurætur. Við fengum frábært veður bæði um daginn og nóttina. Við stelpurnar vorum 4 saman í tjaldi (ég, Sigrún, Steinunn og Sigga) og það fór bara vel um okkar svona fyrir utan risagrjótið sem stakst upp í bakið á Sigrúnu og holu sem ég rann alltaf ofaní :-) Voða fyndið svona eftirá. Um síðustu helgi var svo "Jólahlaðborðshelgin mikla"!!! Þá fórum við Daði nefnilega á tvö jólahlaðborð, á föstudeginum með vinnunni hans Daða og á laugardeginum með vinnunni minni. Það sniðugasta við þetta allt saman var þó ekki að bæði boðin skildu hafa komið upp á sömu helginni heldur var aðal djókið það að bæði hlaðborðin voru á Lækjarbrekku!!!?!?!? Sem ég er ekki einusinni það hrifin af!! Þessi helgi var samt alveg hin allra skemmtilegasta og það var sko mikið borðað og drukkið í góðra vina hóp. Núna undanfarna viku er Daði búinn að vera í LA svo ég er búin að vera ein með stelpurnar að undirbúa jólin. Á svona stundum er sko gott að vera ofurkonan því ég er búin að þurfa að taka á honum stóra mínum til að koma öllu í verk. Ég er búin að taka til, hengja upp seríur, skreyta húsið, kaupa jólagjafir, skreyta jólatréð með stelpunum, búa til -skrifa á og senda jólakort, pakka inn öllum jólagjöfunum, baka og skreyta piparkökur með stelpunum ofan á allt hitt venjulega dótið eins og að vinna allan daginn og mæta í ræktina. Já og svo er ég meira að segja búin að selja nokkur jólatré með fbsr. Eins og ég segi,,,,,, mikið gott að vera ofurkona ;) Daði minn er svo að koma heim á morgun þannig að við náum örlítið að njóta jólaundirbúningsins saman. Ég er nefnilega ein af þeim sem finnst aðdragandi jólanna ef ekki bara skemmtilegri en jólin sjálf og finnst því alveg nauðsynlegt að jólaundirbúningurinn sé ekki bara stress. Núna ætla ég svo að fara að koma mér í bælið svo maður verið nú reddý í vinnuna í fyrramálið. Bið að heilsa ykkur öllum og gleðilegan jólaundirbúning :) 
 Birna Luna að skreyta jólatréð
 Hanna Sigga líka að skreyta
 Og svo nokkrar úr Hvalfjarðargöngunni góðu. Sigrún, Sigga og Steinunn eiturhressar í morgunsárið
 Ég í fjandans holunni :)
 Aumingja bakpokarnir okkar Siggu sem voru úti alla nóttina voru frosnir í gegn
 Ég og Sigrún sætar að vanda
 Ég og Glymur
| |
| Vá hvað tíminn líður hratt | | 18. nóvember 2009, Miðvikudagur | | Klukkan: 12:22 | Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, áður en maður veit af verða jólin komin. Síðan ég skrifaði síðast hefur ýmislegt gengið á. Ég er búin að halda uppá eitt afmæli, selja hátt í 40 neyðarkalla, hlaupa í poweradehlaupinu, fá fullt af gestum og fleiraogfleira. Afmælið gekk ótrúlega vel. Mamma, tengdamamma og Eva systir komu allar hingað og tóku þátt í bæði undirbúningi og veislunni sjálfri. Það komu fullt af litlum börnum sem mörg hver voru að koma í fyrsta skipti ein í afmæli þannig að ég þurfti að taka á honum stóra mínum að hafa ofanaf fyrir þeim og koma í veg fyrir "ég vill fá mömmu mína" kór :) Salan á Neyðarkallinum gekk alveg vonum framar og það koma mér gríðarlega á óvart að það var ekki svo slæmt að standa uppgallaður í Glæsibæ og pranga kallinum uppá fólk. Svei mér ef að var ekki bara svolítið gaman. Ég hljóp líka mitt fyrsta 10k hlaup á fimmtudaginn síðasta í hinu svokallaða poweradehlaupi. Hlaupið gekk rosalega vel og var bara mjög gaman að taka þátt í þessu með öllum 400 þáttakendunum, svaka stemning og ég fékk meira að segja 3 stig fyrir frammistöðuna! Næstu dagar og vikur verða ekki minna pakkaðir en að undanförnu og eins gott að maður haldi rétt á spöðunum til þess að ná að klára allt sem maður ætlar sér fyrir jól. Bið að heilsa í bili og hafið það nú gott Kveðja Dísa
 Fallega afmælisstelpan mín að fara að blása á kertin sín fjögur
 Hanna Sigga hjálpaði að sjálfsögðu til að undirbúa veisluna, svo dugleg þessi elska
 Kakan fína. Hanna Sigga valdi sjálf myndina :)
 Mamman hjálpaði stelpunni sinni smá að blása á kertin
| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Svanfríður Heiða Björk |
| | 04. nóvember 2009, Miðvikudagur | | Klukkan: 08:13 | Undanfarnir dagar hafa verið nokkuð strembnir enda mikið að gerast og mikið að gera. Ekki virðast vera lát á því á næstunni og til dæmis er ég að fara að halda uppá barnaafmæli um næstu helgi. Jújú litla ungabarnið mitt er 4 ára í dag :-| og ég skil bara ekki hvernig það getur verið því ég er nokkuð viss um að hún sé nýfædd. Við ætlum að halda svaka veislu og ömmur, afar og frænkur, frændur ætla að koma frá Höfn og Akureyri. Ég verð reyndar líka að selja Neyðarkallinn fyrir FBSR um helgina þannig að það verður mikið að gera hjá mér. Ef þið viljið styrkja björgunarsveitirnar þá endilega sendið mér póst á herdis.eiriksdottir@gmail.com og ég skal redda ykkur einu stykki :) Ég er búin að vera að mæta í kettlebells reglulega að undanförnu og kann alltaf betur og betur við þetta dæmi. Ég er reyndar öll út í marblettum eftir bjöllurnar því ég er ekki ennþá búin að ná tækninni og stundum skella þær á mér á frekar óþægilegan hátt. Ég er búin að þurfa að útskýra fyrir mörgum af hverju ég sé með bólgna og marða úlnliði og handleggi því eins og þetta er þá er eins og ég hafi lent í rosalegum útistöðum við einhvern eða þá verið handjárnuð frekar ruddalega :) Um síðustu helgi fór ég með nokkrum úr B1 í flubbunum í göngu um Brennisteinsfjöll og Lönguhlíð á Reykjanesi og við fengum þetta líka flotta veður. Dagurinn var virkilega vel heppnaður og við komum líka við í nokkrum ferlega flottum hellum á leiðinni til baka. Það kom mér á óvart hvað þessir hellar voru stórir og flottir og eins fannst mér skrítið til þess að hugsa að hafa ekki farið fyrr að skoða þá. Þetta er hérna rétt í bæjardyrunum. Bið að heilsa í bili
 Sigrún, ég, Inda, Rannveig, Sveinn, Brynjar og David.

| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Árdís Erna Halldórsdóttir |
| Vinna og skóli | | 02. september 2009, Miðvikudagur | | Klukkan: 16:22 | Alveg kominn tími á smá fréttir af okkur hérna á Nýlendugötunni. Ég er sem sagt byrjuð að vinna hjá Betware og alveg á fullu í að reyna að komast inn í hlutina þar. Ég er að vinna með fullt af skemmtilegu og kláru fólki og mér sýnist ekkert því til fyrirstöðu að þetta verði mjög góður vinnustaður. Nú er svo bara að koma sér aftur í multitask-gírinn, þ.e vinna, sjá um heimilið og mæta í ræktina. Já og svo má ekki gleyma Flubbunum, en ég ætla að gera aðra tilraun til þess að ganga í flugbjörgunarsveitina og bara að vona að það verði ekki önnur katastrofía hérna á landinu í vetur sem setur allt á hvolf hjá manni :) Birna Luna er lika byrjuð í skólanum aftur og er mjög kát og ánægð. Við erum búin að skrá hana í dansskóla þannig að þetta verður örugglega skemmtileg önn hjá henni líka.
Í augnablikinu man ég ekki eftir neinu öðru að segja frá og ætla því að hætta núna. Bið að heilsa ykkur öllum Disa | |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Lilja Árdís |
| Spánn á morgun | | 10. júní 2009, Miðvikudagur | | Klukkan: 19:51 | Æ já það er voðalega langt orðið síðan ég skrifaði e-ð síðast. Það hefur svo sem nóg verið að gerast en ég bara er haldin gríðarlegri bloggleti þessa dagana og kem mér alls ekki í það að blogga. Fyrir 2 vikum síðan gekk ég á Sveinstind í Öræfajökli í hópi góðra manna. Við gengum upp frá Fjallsárlóni, yfir Ærfjall og þaðan á Sveinstind. Þegar það var búið gengum við þvert yfir öskjuna á Öræfajökli og niður Sandfellsleiðina. Við vorum e-ð í kringum 16 tíma á leiðinni sem ég held að hafi verið tæplega 30km og þetta var alveg brill. Við lentu í brjáluðu veðri á toppnum (2044m) og sáum ekki niður fyrir tærnar en allt upp í uþb 1800 metra var stórkostlegt útsýni. Ég sá eitt snjóflóð og heyrði tvö önnur falla á uppleiðinni. Fyrir utan niðurleiðina (ekkert spennandi að ganga þessa blessuðu Sandfellsleið(: ) var þetta skemmtilegasta gönguleið sem ég hef farið. Á laugardaginn síðasta vöknuðum við hér á heimilinu við gríðarlegan þokulúðrakór skipaflotans í bænum. Það var sem sagt verið að setja Hátíð hafsins sem er víst haldin í tilefni af sjómannadeginum. Ég skil reyndar ekki af hverju það má bara ekki kalla þetta Sjómannadagshátíð en það skiptir svo sem ekki öllu. Við búum náttúrulega niðri á bryggju hérumbil þannig að við nutum hátíðarinnar í botn. Við sáum furðufiska (alveg í tonnavís), sáum leikrit, sum okkar nýttu sér hoppukastalana, við borðuðum hval, kynntum okkur starf björgunarsveitanna og fleira og fleira. Til að kóróna daginn fórum við niður á Austurvöll vopnuð íslenska fánanum til þess að reyna að vega e-ð upp á móti öllum appelsínugulu Hollendingunum sem þar voru. Það fór hinsvegar lítið fyrir okkur Íslendingum við hliðina á mjaltakonuklæddu hollensku stuðningsmönnunum (án gríns, mjaltakonur!!). Hollensk tónlist barst út af börunum niðri í bæ og hollenskir fótboltabullu-söngvar ómuðu um Austurvöllinn. Það var gersamlega allt fullt af Hollendingum sem skemmtu sér konunglega í veðurblíðunni í Reykjavík sem skartaði svo sannarlega sínu fegursta. Á morgun erum við mæðgur svo að fara til Spánar með m+p og Evu og börnum. Við ætlum að vera í tvær vikur og hafa það æði :) Vonandi hafði þið öll það líka æði kveðja Dísa
| |
| Hvannadalshnúkur | | 11. maí 2009, Mánudagur | | Klukkan: 15:51 |
 Við systkinin gengum á Hvannadalshnúk á laugardaginn síðasta. Ég hafði nú ekki þorað að vonast eftir góðu veðri, sérstaklega af þvi ég er sérlega óheppin með veður þegar ég geng á jökul, og ég var eiginlega búin að búa mig undir lélegt skyggni. Okkur til mikillar gleði og hamingju þá var yndislegt veðru og útsýnið alveg brilljant nær alla leiðina. Ferðin upp og niður tók okkur uþb 12 tíma og gekk með eindæmum vel. Ég held að það sé nokkuð öruggt að ég komi til með að ganga aftir á Hvannadalshnúk... þvílík sæla :) Ætla að setja nokkrar myndir inn fyrir þá sem ekki eru á facebook
 Verið að leggja íann kl 9 á laugardagsmorgni

 Verið að græja línuna
 Allir óskaplega hamingjusamir yfir þessum dýrðarstað
 Jónsi, Hrafn, ég og Dyrhamar
 Hrafn og Jónsi komnir upp í 1800m á sléttuna svokölluðu í yndælu veðri
  Glæsilegur hnúkurinn fyrir aftan
 Síðustu 300m og allt fullt af sprungum
  Komin á toppinn, algerlega ólýsanleg tilfinning


| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Júlía helga dís Eva Árdís d |
| Láta vita af sér | | 29. apríl 2009, Miðvikudagur | | Klukkan: 09:26 | Ég er hérna ennþá þrátt fyrir mikið álag í skólanum og drep leiðinlegan kosninga áróður undanfarnar vikur. Kosningarnar eru sem betur fer búnar og ég, þó ótrúlegt sé, bara nokkuð sátt. Núna fer tíminn minn aðallega í verkefnavinnu í skólanum og ég get ekki beðið eftir því að klára þessa önn næsta fimmtudag þegar síðsta prófið mitt er. Þá ætla ég sko að klára peysuna mína sem ég er að prjóna og taka til hérna í húsinu og bara gera hluti sem ég hef sett á hakann út af þessu skóladóti. Við Daði og Hanna Sigga fórum á laugardaginn síðasta að horfa á Birnu Lunu og félaga hennar í 5. flokk KR vinna Fram í fótbolta og þá tók ég eftirfarandi myndir. Vildi bara aðeins monta mig af fallegu og duglegu stelpunni minni :) Kveðja á línuna

| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Árdis kolla tjörva Helga Rún |
| Gleðilega páska | | 12. apríl 2009, Sunnudagur | | Klukkan: 08:00 |
Borðið nú nóg af súkkulaði :)
 (Á Grenivík á sleðanum hennar ömmu,,,,,, óendanlega gaman)
| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Svanfríður Árdís |
| Vorið | | 03. apríl 2009, Föstudagur | | Klukkan: 12:45 | Héðan er allt flott að frétta. Lokaspretturinn að hefjast í skólanum og ég hef meira en nóg að gera í skólanum og bootcampinu og hlaupunum og svo auðvitað þetta venjulega hérna á heimilinu. Ég, Jónsi og Hrafn erum búin að skipuleggja ferð á Hnúkinn í maí og ég verð þess vegna að fara að drífa mig að ganga nýju gönguskóna mína til. Ég er voðalega lítið búin að ganga í þeim frá því ég fékk þá um jólin og nenni engan veginn að vera fótlama í 1000 metra hæð á leiðinni á Hnúkinn. Þannig að ef einhvern langar í fjallgöngu á næstunni hérna í nágrenni Reykjavíkur þá endilega pikkið mig með :) Í júní er ég svo búin að panta ferð til Spánar fyrir mig og stelpurnar en við ætlum að vera í tvær vikur með mömmu, pabba og Hrafni bró. Ég hlakka mikiðmikið til og get ekki beðið eftir því að vera í hita og sól. Það eru orðið svo langt síðan ég hef komið til Spánar og ég hlakka til að sjá hvort allt sé ekki örugglega alveg eins og það var. Núna er ég hinsvegar á leiðinni út í búð og bið að heilsa í bili Dísa
| |
| Þeir sem hafa tjáð sig eru: Svanfríður Helga Rún mamma |
| Allt fínt að frétta | | 19. mars 2009, Fimmtudagur | | Klukkan: 06:47 | Mér gekk mjög vel að kynna verkefnið mitt á mánudaginn og Helmut kennari var "sehr" ánægðu með mig!! Það er ágætt að fara bráðum að sjá fyrir endann á önninni en mér hefur gengið mjög vel með öll þau verkefni sem ég hef þurft að gera og er ansi sátt við að flestir áfangarnir eru próflausir og verkefnin mín koma til einkunna. Ég er alltaf með harðsperrur eftir bootcamp-ið og hlakka ferlega til næsta tíma. Það lítur út fyrir að þetta hafi verið einmitt það sem ég þurfti því ég var orðin hundleið á því að mæta ein í ræktina og var eiginlega alveg hætt að nenna. Núna er ég að finna fyrir harðsperrum í vöðvum sem ég viss ekki einusinni að væru til!! Annars er bara allt fínt að frétta. Daði afskaplega sáttur í nýju vinnunni og ekkert nema gott um það að segja. Þeir eru komnir með svaklega fína aðstöðu niðri í Aðalstræti og núna uppá síðkastið hafa mikið að bandaríkjamönnum sem eru að vinna fyrir fyrirtækið úti verið hérna á landinu. Það er algerlega ofar mínum skilningi en þeir eru alveg að elska Ísland og okkur Íslendinga!! Ég hefði kannski skilið það pre-stórkostlegar efnahagshremmingar en núna þá er allt svo depressing hérna að mér finnst bara alveg stór undarlegt að einhver skuli vera að hrífast af því sem er í gangi hérna í Reykjavík. En já það er allavegna gott að það skulu vera einhverjir góðir punktar hérna á landinu fyrir utan fallegustu náttúruna. Ég bið að heilsa í bili og hafið það nú gott Dísa | |
|
-747490.jpg) svona er island i dag
 snemma beygist kròkurinn :-)
 Óþekka ofurþreytta prinsessan min
 Útsýnið út um gluggann minn - Austurvöllur
 Á Þingvöllum
 Labbað í Almannagjá
 Ein enn
 Sætasta súkkulaðistelpan
|
|